fimmtudagur, desember 24, 2009

Maður á fertugsaldri át á sig gat


Stendur á gati: Þorgeir var furðu hress þrátt fyrir óhappið, enda töluvert við skál, sem hann sagði vera vestfirzkan jólasið. Sjá má í vegginn aftan við Þorgeir, í gegnum maga hans. Þorgeir gat hinsvegar enga skýringu gefið á því, hvers vegna hann var klæddur eins og Mr. Bean.




Þorgeir Jónsson (33) verslunarmaður og átvagl búsettur í Fossvogi, gerði sér lítið fyrir og át á sig gat, í bókstaflegri merkingu, er hann snæddi jólasteikina fyrr í kvöld, ásamt fjölskyldu sinni.


Þorgeir, sem þjáðst hefur af vannæringu í mörg ár, át allt sem hönd á festi þegar jólasteikin var á borð borin, um sex- leitið í kvöld.


Gatið sem Þorgeir borðaði á sig, er staðsett á kvið hans og er á stærð við fótbolta, en líkami Þorgeirs virðist þó starfa eðlilega, þó svo maginn, miltað og annað nýrað, sé horfið með öllu.


"Þetta er alveg ótrúlegt sko, ég hélt að þetta væri bara svona orðatiltæki, sem notað var um menn sem borðuðu yfir sig, en ég bjóst aldrei við að lenda í þessu sjálfur. Ég er búinn að vera svoooo svangur í öll þessi ár, en ákvað að kýla bara á það núna og borða almennilega. Ég hinsvegar gjörsamlega sprakk þegar ég fékk mér ábótina af heimalagaða rjómaísnum, og eftir stóð bara gat. Ég efast nú um að ég leggi í hangikjötið á morgun," sagði Þorgeir flissandi við blaðamann VSP nú undir kvöld.


Í kjölfar atviksins vill landlæknir árétta að hófsemi beri að gæta í þeirri neyslu sem nú ber að höndum á þessum tíma árs.

fimmtudagur, desember 03, 2009

Milljarðamæringur byggir sumarbústað


Óvenju gestkvæmt var þegar ljósmyndara VSP bar að garði í gær.


Lottóvinningshafinn Kristján "Lýður Oddson" Jónatansson, hefur nú lokið við byggingu sumarbústaðar síns við Svínavatn, en bústaðurinn var reistur á friðuðu landi, sem telur samtals 30.000 ferkílómetra, en bústaðurinn er sjálfur um 4000 fermetrar.


Bústaðurinn, sem nefndur hefur verið "Ástarhofið" er jólagjöf Kristjáns, og tákn um hina miklu ást er hann ber til eiginkonu sinnar, Þorbjargar, sem sá alfarið um hönnun bústaðarins, enda starfaði hún um tíma sem aðal-gluggaútstillari Einarsbúðar í Bolungarvík á níunda-og tíunda áratugnum. Þá á hún alla Innlit/Útlit þættina á DVD og hefur baðherbergi hennar komist á síður Húss & Híbýlis.


Bústaðurinn er allur hinn glæsilegasti og var hvergi til sparað í lúxus. Hann telur 30 svefnherbergi, 15 baðherbergi, og þrenn eldhús. Auk þess er lyftingar-og æfingarsalur, tveir fundarsalir, bókasafn, og lítil 10-11 verslun, ef ske kynni að hjónakornunum skyldi vanta eitthvað. Þá er þar einnig knattspyrnuvöllur í fullri stærð, hvar Breiðablik mun spila heimaleiki sína í framtíðinni.
Ekki er vitað með hvaða hætti Þorbjörg hyggst endurgjalda Kristjáni ástarjólagjöfina, en gárungar segja að hún prjóni nú lopapeysu á mann sinn sem óð væri.