mánudagur, mars 10, 2008

New York maraþonið fær nýja styrktaraðila

Hið víðfræga New York maraþon, sem haldið er árlega einhvers staðar í Bandaríkjunum, hefur að undanförnu fengið nýja styrktaraðila. Í hópi þeirra sem munu auglýsa í kringum viðburðinn í haust; eru Smirnoff vodka og Bombay gin, en þessir áfengisframleiðendur hafa ekki komið að þessum viðburði áður með neinum hætti. Ekki er vitað hvað kveikti skyndilega áhuga þessara aðila, og mun það ekki vera rakið til þess að Hálfdán Gíslason verður á meðal keppenda.