mánudagur, september 26, 2005

Segist ekki vera með brókarsótt!

Hér sést Jónína(64) létt á bárunni



Jónína Ben, næringarfræðingur og heilsuráðgjafi, segist ekki vera með brókarsótt, í kjölfar frétta af meintu ástarsambandi hennar og Styrmis frá Mogganum, Jóhannesar í Bónus, Tomma í Hard Rock, Bolla í 17, Rolf í Rolf Johansen, Ingvari Helgasyni í Ingvari Helgasyni, Jón Ólafs í Herbalife, Gulla í Karnabæ, Sigfúsi í Heklu, Jóni á hjólinu, Halldórs í Henson, Stebba í Sálinni, Sigga Svarta á Hlemmi, Stefáni í Lúdó Sextett, Ellert Schram úr KR, Gunnar Huseby úr KR, Ásgeirs Ásgeirssonar af Bessastöðum, og Gunnars í Krossinum.

Þó ekki neiti hún að hafa verið með þessum mönnum, á yfir 50 ára tímabili, segist hún aldrei myndi senda þeim tölvupóst, því flestir þeirra kunni ekkert með slíkt að fara.

"Ég mun ekki fara nánar út í mín einkamál, enda finnst mér ósmekklegt að bera ástarmál mín á borð fyrir landann. Hver er annars pabbi þinn vinur?", spurði Jónína blm VSP með glampa í augunum í dag.

VSP leggja til að menn frá aldrinum 45-85 læsi að sér útihurðum, og dvelji innandyra meðan fjölmiðlafárinu slotar, og fylgist grannt með fréttum.