þriðjudagur, september 20, 2005

Gripinn við lestur DV!

Kristján Jónsson, lífskúnstner og sérlegur velunnari Sjálfstæðisflokksinns, sést hér við lestur sorpritsinns DV. Þykir þetta reginhneyskli, þar sem Kristján er annálaður Moggamaður, enda hefur hann unnið þar um nokkurt skeið, sem og lesið hann oft og mörgum sinnum.

Styrmir Gunnarsson, ritsjóri Morgunblaðsins, sagði í viðtali við X-FM í morgun, að um sérlega ósvífni væri að ræða hjá Kristjáni, og bryti slíkur verknaður í bága við 4. grein hollustueiðs starfsmanna Morgunblaðsins, sem segir skýrt og greinilega að: "...er því starfsmönnum Morgunblaðsins, sem eru verndarar frelsisins, og riddarar sannleikans, með pennan að vopni, óheimilt að saurga sál sína með lestri sorprita (DV) og þessháttar slúðurblaða, ellegar eiga hættu á útskúfun úr þjóðfélagi réttsýnna, og dygðsamra blaðamanna, sem starfsmenn þessa blaðs eru svo sannarlega."


Kristján sagðist sjá eftir öllu saman, slík yfirsjón væri ekkert annað en asnaskapur, og þetta myndi aldrei koma fyrir aftur. Hann hafi bara viljað kíkja á íþróttasíðurnar, sem væru með svo mörgum skemmtilegum litmyndum.