föstudagur, mars 04, 2005

Fyrirsæta á ferð og flugi

Fyrirsætuferill Trausta Salvar Kristjánssonar virðist vera kominn á flug á ný samkvæmt nýjustu tíðindum frá Akureyri. Nú rétt undir kvöld barst vefriti VSP frétt þess efnis að Trausti muni verða í aðalhlutverki í tónlistarmyndbandi sem tekið er upp í tilefni af Árshátíð Háskólans á Akureyri. Hátíðin er í kvöld og nú á sjötta tímanum munu tökur fara fram en myndbandið verður eftirlíking af þekktasta tónlistarmyndbandi ársins við lagið Call on me. Trausti er enginn nýgræðingur í bransanum eins og kunnugt er og verður vart skotaskuld úr því að hrista fram úr erminni þokkafullar þolfimi hreyfingar. Auk þess er hann fyrrum aðstoðarupptökumaður á sjónvarpsþættinum Mósaík og getur því einnig haft efirlit með gæðum myndatöku.