laugardagur, febrúar 26, 2005

Til heiðurs Gumma Ben

Stofnaður hefur verið aðdáendaklúbbur Guðmundar Benedikssonar, og geta áhugasamir skoðað heimasíðu félagsskaparinns á slóðinni www.gummiben.is

Það er Kristján Jónsson lífskúnstner, sem sér um síðuhald og gegnir einnig formennsku. "Já það var úr mörgu að velja, en Herbert Guðmunds, Alice Cooper, Dominique Wilkins, Platini, Raggi Óskars, Nicolai Jacobsen, og Gylfi Ægis verða að bíða aðeins eftir þeirra aðdáendarklúbbi, ég get jú bara gert eitt í einu", sagði Kristján kíminn á svip, enda í óvenjulega góðu skapi, þar sem Guðmundur á að lýsa leik Manchester United og Portsmouth í beinni á Skjá Einum í dag.

Kristján er 27 ára gamall, ógiftur, og barnlaus.