föstudagur, febrúar 25, 2005

Gríðarleg landkynning!

Nú rétt í þessu greindi veðurfréttarmaður The Weather Channel í Bandaríkjunum frá því, að 900 millibara lægð væri á leið sinni til Íslands frá Kanada.

The Weather Channel sjónvarpsstöðin nær til yfir 70 milljón heimila í Bandaríkjunum, og er talið að allt að 200.000 manns horfi á hana á degi hverjum.

Sigfríður Schiöth hjá Íslenskri landkynningu hf sagði að þetta væri gríðarlega góð landkynning fyrir Íslands hönd, og búast mætti við miklum kipp í ferðamannastrauminn á næstu dögum.

Einnig bætti hún við að þótt spáin hefði verið slæm, væri útlitið gott, og allt sem færi upp, kæmi niður aftur.