miðvikudagur, febrúar 09, 2005

Útvarpsréttarnefnd skipar Þorsteini Gunnarssyni að tala íslensku

Benedikt Bogason formaður Útvarpsréttarnefndar sagði við VSP í dag, að nefndin muni koma saman á morgun fimmtudag, og fara yfir málefni enska boltans. Benedikt sagði að ljóst væri að lögin giltu um alla, og þar á meðal Þorstein Gunnarsson, sem hefur ítrekað neitað að tala skýra og góða íslensku í beinum íþróttalýsingum. "Þó að Þorsteinn sé málshefjandi á málinu með kæru sinni, er hann ekki hafin yfir lögin sjálfur", sagði Benedikt í dag.

Þessu til viðbótar má nefna, að sjónvarpsstjóri Skjás Eins, sendi Þorsteini bréf þess efnis í gær, að honum væri boðið að taka þátt í íslenskunámskeiði á kostnað Skjás Eins, en námskeiðið er haldið í Melaskóla, bekk 2b. Þorsteinn afþakkaði kurteisislega, með orðunum: " é ssgil eki kvað mönum geingur tyl meþ sona frammkomu, þetta er bara móðgun við myg ok eggert anað."