þriðjudagur, febrúar 22, 2005

Tóbaksnotendur í verkfall!

Tóbaksnotendur hafa blásið til verkfalls frá og með 1. mars nk. segir í tilkynningu frá H.Ó.S.T. Hagsmunasamtökum ógeðslegra sígarettu tranta, en þau segja gróflega brotið á rétti sínum á hverjum degi. Mun verkfallið fara fram með keðjureykingum flokksmanna.

Stautur G. Stækjan, formaður samtakanna, talaði opnum hálsi, gegn nýju frumvarpi nokkurra "þurrkuntu þingkvenna" einsog hann orðaði það, með raddmagnaranum sínum á fundi í gær.

Margir hafa þó fagnað frumvarpinu, sem segja frelsi reyklausra meira en þeirra sem reykja. Þó hafa nokkrir talsmenn herskárra öfgasinnaðra hægristefnumanna bent á árekstur þess við eignarréttinn, og að slík frelsisskerðing sé á allan hátt óréttlætanleg.

Vígdís Fimmbogadóttir hefur til að mynda hlekkjað sig við Kaffi Reykjavík, en hún hefur reykt 2 pakka af Camel á dag síðan 1958. "Hingað fer öngvinn reyklaus Íslendingur inn meðan ég hef ennþá heilsu," sagði þessi fyrrum forseti þvinguð í bragði, enda aldeilis ekki laus á henni taumurinn.

Magnús Þór Sigmundsson, Megas, sá sig tilneyddan til að gefa út tilkynningu þess efnis, að slík lög myndu stofna rödd hans og lífi í hættu, þar sem hann mætti ekki samkvæmt læknisráði vera of lengi í hreinu lofti, en Megas hefur lifað í plastkúlu fullri af reyk undanfarinn 5 ár, (bubblegasboy) , þar sem ónæmiskerfi hans er ekki vant öðru en hverskyns eiturmettuðum gufum.

Aðspurður sagðist Þorgrímur Þráinsson ekki vilja tjá sig um málið.