þriðjudagur, mars 22, 2005

Vestfirskar konur þær fegurstu í heimi

Samkvæmt netkönnun Gallup meðal Vestur-Íslendinga kom í ljós , að vestfirskar konur eru fegurstar fljóða, ef miðað er við höfðatölu, og meðaltal íbúa per landsfjórðung fyrir sinnaskiptin.

Þetta segir Trausti Salvar Kristjánsson, kvennamaður, og atvinnudaðrari, alls ekki koma sér á óvart, enda hafi hann lengi verið hrifinn af vestfirskum konum.

"já, þær hafa löngum verið fallegar hér fyrir vestan, en þær mættu bara vera fleiri, og ekki eins fráteknar, " sagði Trausti beinstífur í bragði.

Nú þegar mikil páskahátið er í vændum má búast við fjölda manns sem heimsækir vestfirði, og án efa verða föngulegar stúlkur þar á meðal. Leiðir hugann ósjálfrátt að mikilli kynlífshátið sem haldin var í Bolungarvík fyrir skömmu, en þar voru getin hátt í 500 börn á aðeins tveimur dögum, met sem Soffía Vagnsdóttir, skipuleggjandi orgíufestivalsinns Á broddinn sagðist ætla bæta í ár.

"Já við höfum brugðið á það ráð að dreifa gölluðum smokkum í alla framhaldsskóla og á alla vinnustaði, og hvatt konur til að hvíla pilluna þessa páskaviku," sagði Soffía með glampa í auganu.




(Trausti er með allar tennurnar, heilsuhraustur, í háskólanámi, ógiftur, barnlaus, og á lausu...)