þriðjudagur, janúar 18, 2005

Taktu þátt í léttum leik!

Vinsældir þessarar síðu eru sífellt að aukast. Ein athugasemd hefur bæst við síðan 4. janúar, og er það 100% aukning ! En betur má ef duga skal. VSP blása nú til keppni, um sniðugustu fréttina. Sendið heiti fyrirsagnar sem sms í símann 661 7777, og eigið á hættu að verða dregin út í þessum skemmtilega getraunarleik. Glæsilegir vinningar eru í boði, t.d. lítið notuð gormabók (a4), heftari, Sony fjarstýring (fyrir plötuspilara), og Bic kúlupennar! Verðmæti vinninga er allt að 300 kr. !!!


(munið að senda nafn og kennitölu með sms-inu)