þriðjudagur, janúar 18, 2005

Guðmundur Jónsson á Nissan Micru!!!

Nú fyrir aðeins örfáum mínútum bárust þau tíðindi frá fréttaritara VSP í vesturbæ Reykjavíkur, Kristjáni Jónssyni, að sjálfur Guðmundur Jónsson, lagasmiður Sálarinnar Hans Jóns Míns,keyri um á Nissan Micru.
Þykja þetta stórtíðindi, enda ekki á hverjum degi sem slíkur atburður skekur þjóðina. Kristján, 27 ára, hefur að undanförnum árum sjálfur keyrt slíkan bíl, með mismunandi (ár)angri, og má því réttilega telja, að líf Guðmundar sé í bráðri lífshættu.