laugardagur, janúar 15, 2005

Liverpool tapar fyrir Manchester United

Liverpool tapaði enn á ný fyrir erkifjendum sínum frá Manchester í fjörugum leik á Anfield Road í dag. Það var Ryan Giggs sem kom Rauðu djöflunum yfir á 43 mínútu, en Dietmar Haman jafnaði með þrumuskoti í byrjun síðari hálfleiks. Paul Scholes kom bikarmeisturunum síðan aftur yfir á 65 mínútu, og Wayne Rooney rak síðan smiðshöggið með skoti beint úr aukaspyrnu undir lok leiksinns.

(Eftirfarandi texti er einungis vísindaleg tilraun, til að kanna hvort skáldskapur geti haft áhrif á veruleikann. )