mánudagur, desember 18, 2006

Vill hörðustu refsingu

Kolbrún Halldórsdóttir, þingkona Vinstri Grænna, hefur farið fram á að Guðmundur Jónsson, hinn fingralangi og limalitli formaður Byrgisins, verði sendur í rafmagnsstólinn fyrir (kynferðis) glæpi sína gegn konum, og þar af leiðandi mannkyninu.

Kolbrún, sem er andsnúin kynlífi til ánægjuauka, segir hegðan Guðmundar “ógeðslega og ónáttúrulega”, og sé einungis samboðin “klámhundum og efnishyggjuanorexíuhollywoodgelgjum á við Paris Hilton.”

Kolbrún segir að mál Guðmundar sé kjörið fordæmi fyrir upptöku notkunar rafmagnsstólsins sem hefur ekki verið notaður hér á landi síðan Bólu-Hjálmar var líflátinn fyrir útferð og gröft í andliti árið 1784.

Guðmundi barst þó óvæntur stuðningur í dag frá Stingólfi Skuðbrands (Ingólfur Guðbrandsson) sem sagðist dást að Guðmundi og tælingarhæfileikum hans. Sjálfur hefði hann annan háttinn á,
eða "fara með þær til útlanda, gefa þeim dýrar gjafir, fylla þær svo með kampavíni, spila aðeins píanóið, og bregða mér svo í eitthvað þægilegra....Þetta klikkar aldrei," sagði Ingólfur og skolaði viagra pillunni niður með tvöföldum vískí.