sunnudagur, október 22, 2006

Ásdís Svava á ferð og flugi







Ásdís á ættir að rekja til Bolungavíkur


Hin seiðmagnaða og undurfagra fegurðardrottning, Ásdís Svava Hallgrímsdóttir, tekur þátt í ungfrú Evrópa næstkomandi laugardag. Til gamans má geta að Ásdís á ættir að rekja til Bolungavíkur.

Að sögn Ásdísar eru stúlkurnar í keppninni sveltar samkvæmt venju fram að keppni en samt gefa þær sér tíma til þess að kynnast hvor annarri, en Ásdís er einmitt hálf-bolvísk.

Ásdís mun að keppni lokinni halda til Tékklands þar sem ungfrú Táningsglyðra er valin (Miss Exploited Teen Slut). Það skal tekið fram að móðir Ásdísar er bolvíkingur.

Að sögn Ásdísar styttir hún sér helst stundir milli stríða við að telja rifbein annarra keppenda og æfa brosið sitt fyrir framan spegil. Einnig hefur hún gaman af öllu er viðkemur grunnhygginni efnishyggju, en Ásdís er einmitt ættuð úr Bolungavík.

Ásdís segir að stúlkurnar fái aðeins 5-10 mínútna pásur á dag, sem þær nýti helst til að kasta upp eða reykja, til að halda línunum í lagi, en Ásdís er einmitt ættuð að vestan nánar tiltekið frá Bolungavík.

Að sögn Ásdísar er þetta strembin vinna og þreytan leynir sér ekki á kvöldin. Þá geti verið slakandi að baktala hinar stelpurnar, þó þær séu allar “æðislega miklar vinkonur sko”. Þá má geta þess að móðir Ásdísar er Bolvíkingur.