föstudagur, desember 24, 2004

Heimsmet í heimsóknum

Þessi síða hefur sett heimsmet í heimsóknum. Veitt eru verðlaun fyrir 2 flokka: Flestar heimsóknir á hverja síðu annarsvegar, og fæstar heimsóknir á hverja síðu hinsvegar. Fékk þessi síða fyrstu verðlaun fyrir síðarnefnda flokkinn, og er það töluvert áhyggjuefni. Einnig fékk síðan sérstök aukaverðlaun fyrir fæst "comment" í þar til gerða "linka", og hljóta það að teljast sláandi niðurstöður, og gríðarleg vonbrigði fyrir forsvarsmenn VSP.

Vefsmiður síðunnar hefur ekki látið ná tali af sér vegna málsinns, en hann er nú staddur í "golfferð" í Tælandi.

Formaður samtakanna, Kristján Jónsson, segir að málið sé grafalvarlegt, og nú þurfi að grípa til róttækra ráðstafanna, t.d. auglýsingarherferðar, þar sem stórvinur Kristjáns, Sverrir Stormsker, gæti rétt hjálparhönd. "Sverrir er maður sem allt lýsir upp, og á ég þá við upplýsir. Það þarf að virkja þjóðarvitundina með upplýsinguna að vopni, " sagði sagði Kristján í símaviðtali frá Villta Vestrinu, þar sem hann fagnar komu frelsaranns.