fimmtudagur, júní 25, 2009

Benni Sig kærir kynferðislega áreitni

Benedikt Sigurðsson, veðurathugunarmaður í Bolungarvík, hefur lagt fram kæru vegna kynferðislegrar áreitni á vinnustað. Samkvæmt heimildum Sleikipinnavefjarins liggur Fjóla Bjarnadóttir undir grun: "Þetta er náttúrulega fámennur vinnustaður og því mikilvægt að mórallinn sé góður," sagði Benedikt í hjartnæmu samtali við Sleikipinnavefinn. Hann vildi ekki tjá sig frekar um málið en sagði þó baráttu Ásdíar Auðunsdóttur starfsystur sinnar hafa hleypt í hann kjarki til þess að kæra. Veðurstofustjóri vildi ekki veita Sleikipinnavefnum viðtal þegar eftir því var leitað en hann mun vera þekktur fyrir seinleg viðbrögð.