sunnudagur, febrúar 22, 2009

Harald: "Ég hef aldrei hitt Björn"

Harald Pétursson, sölustjóri Nova, neitar því með öllu að hafa nokkru sinni hitt Björn Jörund Friðbjörnsson, tónlistarmann, leikara og andlit Nova: "Þetta er bara eitthvað slúður sem Guðmundur Björnsson í markaðsdeild Símans hefur verið að bera út. Ég hef aldrei hitt þennan mann og aldrei átt við hann samtal. Ég hlustaði hvort sem er aldrei á Todmobile eða hvað þetta heitir," sagði Harald í samtali við Sleikipinnavefinn. Þess má einnig geta að á dögunum sást til Haralds í Safamýri þar sem hann og Baugspenninn, Hallgrímur Helgason, stungu saman nefjum á laugardagsmorgni. Samkvæmt heimildum vefjarins þá var Harald að falast eftir því að Hallgrímur skrifaði greinar um samkeppnismál á fjarskiptamarkaði gegn því að Nova myndi kaupa af honum málverk.