þriðjudagur, desember 14, 2004

Solla á grænum kosti yfirheyrð

Hin síhressa morgunhæna, Solla frá grænum kosti, en margir kannast við hana sem glaðbeittu grænmetisætuna í Íslandi í bítið, hefur verið færð til yfirheyrslu hjá lögreglunni, fyrir ólöglegan áróður gegn "hefðbundnum gildum í matarvenjum íslendinga" , og "gróflega misnotkun á plönturíkinu", eins og Skapti Skaftason hjá RLR komst að orði við blaðamann VSP í morgun. Solla, (62) ára er þekkt fyrir tilraunastarfsemi sína með hinar ýmsu jurtir og grænmeti , sem hún hefur kynnt fyrir þjóðinni í morgunþætti Stöðvar 2, sem hinn holla valkost. Komið hefur í ljós myndbandsupptaka , þar sem Solla sést í kynferðislegum tilburðum við agúrku og jöklasalat, sem þykir í meira lagi ósæmileg, og afar sláandi. Einnig munu hafa fundist ljósmyndir í tölvu Sollu, af naktri Holtasóley, Gleymérey, og Hundasúru í ósmekklegum stellingum. Ríkissaksóknari mun láta reyna á málið fyrir rétti, en talið er að Solla geti hlotið allt að 3ja daga fangelsisvistar, og látin starfa í samfélagsvinnu fyrir verknaðinn, sem hún gæti mögulega tekið út í Skógrækt Ríkissinns, en þar fara um hendur starfsmanna, þúsundir plantna á degi hverjum.

Talsmaður Skógræktarinnar, Reynir Hlynsson, sagði að með þessu máli hafi verið opnaðar þær luktu dyr er snúa að plöntu og grænmetisklámi, sem Reynir segir grasserandi í þjóðfélaginu.
"í dag getur orðið hver sem er labbað í næstu kjörbúð, og verslað sér grænmeti. Ríkið og verslunareigendur verða að stemma stigum við þessari þróun með hækkun verðs á þessa vöruflokka! Einnig eru börn sífellt ginkeyptari fyrir slíkum hollustuvörum með tilkomu Latabæjar og þessháttar viðbjóði! "

Ekki náðist í Sollu áður en fréttin fór í ritun, en grænmetisbændur hafa kippt öllum auglýsingum úr umferð, meðan málið skýrist frekar.