sunnudagur, nóvember 21, 2004

Hljóðsins sér kveðið

Kæru 90% þjóðarinnar.
Mér var nokkuð skemmt yfir því að lesa svívirðingar Salvars til formanns Vesfirskra Sleikipinna og velti ég því nokkuð fyrir mér hver sá ræfill væri eiginlega. En sökum meðfæddrar næmni minnar þá áttaði ég mig á því að ég á víst að vera þessi formaður. Þannig að ef þetta skyldi vefjast fyrir einhverjum, þá er Baldur Smári Einarsson Hálfdánssonar vefstjóri eða Kaztro, Trausti Salvar Kristjánsson Jónatanssonar á að heita framkvæmdarstjóri og undirritaður Kristján Jónsson Friðgeirs Einarssonar á að heita formaður. Því næst fór ég að velta því fyrir mér hvort ég hefði ekki verið búinn að skrifa eitthvað á þessa síðu sem hefði týnst í ritflóði Salvars um heimsmálin. En því var víst ekki að heilsa þannig að heilsunni er hér með komið á framfæri hátíðlega. Þetta er reglulega fínt framtak hjá Baldri þó svo að starfsemi Sleikipinnanna sé svo háleynileg að ekki verði hægt að greina frá öllu á Netinu. Að svo mæltu byð ég lesendum vel að njóta og megi framkvæmdarstjórinn vanda sig við skriftir. Segi ég því þennan vef merkilegann og ....hvar er helvítis borðinn sem ég átti að klippa á?