þriðjudagur, október 11, 2005

Nýr dagskrárliður!!!








Trausti við hönnun hins nýja dagskrárliðar

Þar sem helstu fjölmiðlar landsins hafa nýlega lappað uppá útlitið, RÚV, og Stöð 2, getur VSP ekki verið minni miðill.

Því mun verða boðið uppá dagskrárliðinn: Gamlar syndir, en það er afturhvarf til fortíðar, í máli og myndum.

Birtar verða myndir úr einkasafni Trausta Salvars, sem er æði skrautlegt og skemmtilegt, og eru meðlimir, sem og aðrir, hvattir til að senda áður óséðar myndir frá fyrri tíð, af meðlimum, velunnurum, og tengdum vinahópum.

Netfangið er: 6617777@talnet.is